Erlendum nemum fjölgar í Kvikmyndaskóla Íslands

Skólasetning alþjóðlegu deildar Kvikmyndaskóla Íslands, sem nefnist IFS (Icelandic Film School), fór fram síðastliðinn fimmtudag

Það eru á annað hundrað nemendur í íslenska hluta skólans en í alþjóðlegu deildinni eru 19 nemendur. Íslenska námsdeildin var sett þann 17.ágúst síðastliðinn en núna á fimmtudaginn, 14.september, var skólasetning IFS. 

Kvikmyndaskóli Íslands opnaði alþjóðlega deild (IFS - Icelandic Film School) haustið 2022 með góðum árangri. Mikill áhugi reyndist fyrir deildinni og barst gríðarlegur fjöldi fyrirspurna um hana allstaðar að úr heiminum. Það leiddi til 44 umsókna um skólavist og eftir inntökupróf voru 6 teknir inn í deildina. Sama var uppi á teningnum fyrir vorönnina og bárust 38 umsóknir um vist og stóðust 7 nemar inntökuprófin sem hófu nám níunda febrúar síðastliðinn. Fyrir þessa haustönn voru síðan 9 nemar teknir inn.

Nemendur IFS koma allstaðar að; frá Nepal, Kína, Frakklandi, Bandaríkjunum, Hong Kong, Svíþjóð, Spáni, Indlandi, Mexíkó, Ítalíu, Túnis, Suður-Kóreu, Nígeríu og víðar. Fyrir vikið hefur Kvikmyndaskólinn þurft að auka við sig kennslustofum og er nú kennt á öllum hæðum Suðurlandsbrautar 18 nema á 5.hæð byggingarinnar. 

Kvikmyndaskólinn hefur 22 kennslustofur til umráða ef stúdíóin tvö og bíósalurinn eru talin með auk þriggja kaffistofa, sautján skrifstofa fyrir prófessora og leiðbeinendur, hlaðvarpsstúdíós, tækjageymslu, fundarherbergis og fagstjóraherbergis. 

Nemendur sem eru útskrifaðir úr KVÍ eru risastór hluti íslensks kvikmyndaiðnaðar. Á venjulegu ári fylla útskrifaðir nemendur úr KVÍ allt að 30% starfsheita í kreditlistum íslenskra bíómynda. Niðurstöður kannana hafa sýnt að 96% nemenda spreyta sig í faginu að námi loknu og um 40% þeirra sem útskrifast fá strax störf og vinna allan tímann við kvikmyndagerð að námi loknu.