Útskrift Vor 2022 - Páll Stefán Magnússon, Handrit og Leikstjórn
Páll Stefán mun útskrifast frá þann 4.júní næstkomandi með mynd sína “Areníusaga Þáttur III, heiglar og hetjur”
Liðhlaupi samaríska hersins er handsamaður af kaldlyndri konu sem ferðast með hann þvert yfir Areníu til þess að greiða úr sínum eigin vanhögum

Hver er fyrsta kvikmynda upplifunin sem þú manst eftir?
Fyrsta sem ég man eftir var að sjá geislasverð Obi-Wans og Darth Vaders kljást í upprunalegu “Star Wars” á spólu
Hvað heillar þig við kvikmyndagerð?
Það sem heillar mig við kvikmyndagerð er að listformið er samsteypa af ótal mörgum öðrum listformum, öll í samvinnu við hvort annað. Vegna þessara samspila er tel ég að hver mynd verður einstök á sinn hátt
Hvers vegna varð Handrit og Leikstjórn fyrir valinu?
Því að söguskrifin er það sem er mest skapandi, mesta frelsið !
Kom þér eitthvað sérstaklega á óvart í náminu?
Ómiðstýrða kennarakerfið
Hvernig lítur svo framtíðin út?
Eins björt og sólin meðan hún gyllir haf !