Langar þig að læra kvikmyndagerð?

Heimur kvikmyndanna er ansi fjölbreyttur og það hefur varla farið framhjá neinum að kvikmyndafólk hérlendis er að setja sitt mark á þann heim um víða veröld. Hér hjá Kvikmyndaskólanum eru fjórar námsleiðir í boði;

Leikstjórn og Framleiðsla

Skapandi Tækni

Handrit og Leikstjórn

Leiklist

Við bjóðum ykkur að koma á opið hús hjá okkur, þar sem við kynnum starfsemi okkar, þriðjudaginn 1.október næstkomandi, frá kl.14-16.

Gestir fá að skyggnast inn í kennslustundir og vinnurými, fá að fylgjast með nemendum undirbúa verkefni annarinnar og fá tækifæri til að spjalla við kennara og nemendur.

Hér er hægt að melda sig á viðburðinn á Facebook og fá upplýsingar.

Verið innilega velkomin !