Kvikmyndaskóli Íslands útskrifar nemendur

Útskrift úr Kvikmyndaskóla Íslands fer fram í dag, laugardaginn 7. júní.

Alls mun 21 nemandi útskrifast að þessu sinni, en óvissa ríkti lengi hvort það yrði mögulegt. Ásamt þeim lýkur 33 manna hópur fyrra ári námsins og stefnir að því að snúa aftur í haust til að ljúka seinna ári.

Kvikmyndaskólinn fór í gjaldþrot í vetur. Rafmennt, framhaldsskóli í eigu Rafiðnaðarsambandsins og rafverktaka, keypti eigur skólans úr þrotabúi og kom í samstarfi við Stúdíó Sýrland og endurvakti starfsemi skólans. Skólinn kennir eftir sem áður samkvæmt sömu viðurkenndu námsskrám og sama kennarateymi hefur umsjón með náminu.

Námið er á fjórða hæfniþrepi framhaldsskóla og er eina sinnar tegundar hér á landi. Það hefur tvíþætt hlutverk – annars vegar að búa nemendur undir störf í kvikmyndaiðnaði og hins vegar að veita aðgang að háskólanámi. Viðræður standa yfir við Háskólann á Bifröst um að námið verði metið til eininga. Jafnframt er það lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna.

Rafmennt hefur átt í samtali við Mennta- og barnamálaráðuneytið um að áfram verði veittur fjárhagsstuðningur við námið, en heimildir eru til slíks í fjárlögum. Stuðningur stjórnvalda mun tryggja framhald námsins, sem íslenskur kvikmyndaiðnaður byggir í síauknum mæli á. Stór hluti starfsfólks í kvikmyndaverkefnum á Íslandi eru útskrifaðir nemendur skólans.

Útskriftin í dag er því ekki aðeins fagnaðarhátíð nemenda, fjölskyldna þeirra og kennara – heldur einnig tákn um mikilvægi þess að fjárfesta í menntun, þekkingu og framtíð íslenskrar kvikmyndagerðar.

Frekari upplýsingar veitir Karl Pétur í síma 664 0000.