26% starfsfólks í bíómyndaframleiðslu eru fyrrum nemendur Kvikmyndaskóla Íslands

Þann 1. október kom út skýrsla unnin af starfsfólki skólans sem hluti af innra mati, um þátttöku KVÍ útskrifaðra í starfsliðum þeirra 9 bíómynda sem sóttust eftir að vera framlag Íslands til Óskarsverlaunanna 2019.

Greindar voru sex myndir: Andið eðlilega, Svanurinn, Víti í Vestmannaeyjum, Kona fer í stríð, Lof mér að falla og Vargur.

Meginniðurstöður eru eftirfarandi:

  • Útskrifaðir sinna 58 störfum í þessum sex myndum, sem er að meðaltali 26% starfahlutfall. Hæst var það í Svaninum 39% og Andið eðlilega 37%. Lægst í Kona fer í stríð 10%, en þar var mikið af erlendu starfsliði.
  • KVÍ útskrifaðir dreifast jafnt á milli leikstjórnardeilda, framleiðsludeilda og tæknideilda og beint samhengi er á milli þeirra deilda sem nemendur útskrifast frá og þeirra sérgreina sem þau starfa við.
  • Öll útskriftarár KVÍ frá 2009 eiga fulltrúa í starfsliðum bíómynda 2018.
  • Tveir fyrrum nemendur KVÍ eru í „lykilstöðum“ í starfsliðum ársins, Ísold Uggadóttir leikstjóri Andið eðlilega og Úlfur Teitur Traustason klippari á Lof mér að falla. En fjölmargar aðrar háar ábyrgðarstöður voru skipaðar KVÍ útskrifuðum.

 
Sérstaka athygli vakti sterk innkoma leiklistardeildar í Lof mér að falla með 4 hlutverk. Jafnframt hversu mörgum störfum leiklistin skilaði í leikstjórnar og framleiðsludeildir bíómynda.

Af öðrum niðurstöðum innra mats, má nefna að KVÍ nemendur og útskrifaðir eiga 6 af 12 stuttmyndum sem sýndar eru á RIFF og 13 af 22 á Northen Wave kvikmyndahátíðunum þetta árið. Skýrslunni var gefið heitið Blómstrandi kvikmyndaiðnaður enda sýna niðurstöðurnar mikinn vöxt í greininni m.a fyrir áhrif Kvikmyndaskólans. Innlend bíómyndagerð (árleg framleiðsla) hefur vaxið um 24% þann áratug sem KVÍ hefur starfað með núverandi sniði í 4 deildum.

Smellið á skýrsluna til þess að skoða:
[3d-flip-book mode=”thumbnail-lightbox” urlparam=”blomstrandi-kvikmyndaidnadur” id=”7977″ title=”false” lightbox=”dark” thumbnail=”https://old.kvikmyndaskoli.is/wp-content/uploads/2018/10/blomstrandi-kvikmyndaidnadur-forsida4.jpg”]

Að auki má hlaða henni niður sem pdf skjali hér.

IMG_5275

IMG_5276