"ÉG BÝÐ MIG FRAM" er röð óhefðbundinna örverkasýninga þar sem leikstjórinn Unnur Elísabet býður listamönnum úr ólíkum áttum til samstarfs

Útkoman er óvenjuleg leikhús upplifun, suðupottur nýrra hugmynda, eins konar smáréttaveisla fyrir áhorfendur

Þetta er núna í 4. skiptið sem "Ég býð mig fram" er sett upp. Yfirskrift og heiti sýningarinnar er "Nýr heimur" og er útgangspunktur allra örverkanna í sýningunni. Unnur Elísabet býður nú sjö ólíkum listamönnum í dúett og tvinnar þannig saman ólík listform; leiklist, hreyfingu, myndlist og tónlist. Sýningin fjallar um ólíka heima og heimsenda, á persónulegum eða hnattrænum skala.

Listamenn: 

Unnur Elísabet Gunnarsdóttir, leikstjóri, leikkona og sviðshöfundur

Ellen Margrét Bæhrenz, aðstoðarleikstjóri og markaðsfulltrúi

Anaïs Barthe, dansari

Annalísa Hermannsdóttir, tónskáld og sviðshöfundur. 

Berglind Halla Elíasdóttir, leikkona

Bryndís Ósk Þ. Ingvarsdóttir, sviðshöfundur og múltíkúnster

Friðrik Margrétarson, tónlistarmaður

Júlíanna Ósk Hafberg, myndlistakona

Tinna Þorvalds Önnudóttir, óperusöngkona og leikkona

Thomas Burke, sirkúslistamaður

Sara Hjördís Blöndal, leikmynda- og búningahönnuður

Hafliði Emil Barðason og Juliette Louste, ljósahönnuðir

Ásta Jónína Arnardóttir, stjórn kvikmyndatöku á tónlistarmyndbandi, teaserum og trailerum.

Aðalgeir Vignisson, ljósahönnuður tónlistarmyndbands

----------------------------------------------------------------

Frumsýning verður 11. nóvember kl. 20.30.

Aðrar sýningar sem eru komnar í sölu eru 

20.nóvember

26.nóvember

8.desember

Allar sýningar hefjast kl. 20:30

Hlekkur á miðasölu:

 https://tix.is/is/event/14239/eg-by-mig-fram-4-nyr-heimur/