RIFF kynnir sitt rómantískasta sundbíó!

RIFF sundbíó

Hvað gerist þegar klassísk rómantísk gamanmynd mætir hlýju vatni og vetrarmyrkri? Fimmtudaginn 5. febrúar verður When Harry Met Sally… sýnd í einstöku sundbíói RIFF í Sundhöll Hafnarfjarðar. Áhorfendur geta flotið, setið á bakkanum eða slakað á í lauginni á meðan myndin er sýnd á stóru tjaldi í hlýlegu og óhefðbundnu kvikmyndarými.

Þessi sígilda mynd frá 1989, með Billy Crystal og Meg Ryan í aðalhlutverkum, fjallar af húmor og hlýju um vináttu, ást og óskilgreinda bilið þar á milli. Sundbíó RIFF sameinar notalegt umhverfi, sameiginlega kvikmyndaupplifun og tímalausa klassík.

Fullkomin leið til að lýsa upp svartasta skammdegið.

Viðburðurinn er opinn öllum og fer fram fimmtudaginn 5. febrúar kl 19:00, en hús opnar kl. 18:00.

Hvað fleira er að gerast í bransanum

Registration deadline: February 20, 2026
FESTIVAL: March 11-22, 2026
CPH:INDUSTRY: March 15-19, 2026
INTRO:DOX Actitivites: March 15-16, 2026
INTRO:DOX access to CPH:FORUM: March 16-19, 2026