Staða háskólayfirfærslu Kvikmyndaskóla Íslands

Skjótar aðgerðir nýs ráðherra nauðsynlegar

Væntanlega eru ráðherraskipti framundan í háskólaráðuneytinu í tengslum við kosningar til Alþingis á morgun. Að því tilefni þykir undirrituðum rétt að að fara yfir stöðuna í háskólayfirfærslu Kvikmyndaskóla Íslands, sem því miður er ófrágengin.

Fyrir liggur að Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir núverandi ráðherra setti Kvikmyndaskóla Íslands í úttekt vegna umsóknar skólans um viðurkenningu á fræðasviði lista og uppfærslu náms skólans af 4. hæfniþrepi á hið 5. Niðurstöður úttektar lágu fyrir 12. desember árið 2022. Algerlega skýr niðurstaða var að við skólann færi fram 5. þreps nám. Ráðherra voru veittar þær heimildir sem lög um háskóla nr 63/2006 setja, að ákvörðun ráðherra skuli tekin á grundvelli umsagnar þriggja óháðra sérfræðinga.


Síðastliðnir 24 mánuðir hafa farið í deilur Kvikmyndaskólans við háskólaráðuneytið um:


  • Rétt skólans til afgreiðslu umsóknar eftir kostnaðarsamt og mjög viðamikið umsóknarferli. Á því tímabili (haustið 21) byrjaði skólinn raunverulega að starfa sem háskóli, sem hann hefur gert síðan.
  • Rétt nemenda til að fá gráður sínar rétt metnar. Athuga skal að skjólstæðingar Kvikmyndaskóla Íslands úr 120 eininga diplómu náminu, ná aftur til 2009, því námið hefur verið það sama. Um er að ræða uþb. 600 nemenda hóp. Hver er þeirra réttur, nú þegar staðfest er að við skólann fer fram 5. þreps nám?
  • Rétt sjálfstæðrar nýsköpunar í háskólastarfi á Íslandi. Getur háskóli ekki orðið til á Íslandi, utan núverandi þegar samþykktra háskólaleyfa? Á einkaleyfi einkaskólans Listaháskóla Íslands á fræðasviði lista að standa óhögguð áratugum saman án samkeppni?


Meginfyrirstaðan hefur verið fólgin í þeirri pólítík núverandi ráðherra að háskólum á Íslandi skuli ekki fjölgað, heldur fækkað.  Ráðherra hefur því hafnað að taka við Kvikmyndaskólanum og hefur beitt til þess þeim aðferðum að svara ekki formlegum erindum og bréfum skólans, auk þess sem embættismenn hafa sértúlkað umsagnir sérfræðinga. Sjá meðfylgjandi tvö fylgiskjöl: a. Yfirlýsing stjórnar KVÍ frá 15. okt 2024 og greining háskólayfirfærslunefndar KVÍ á úttektinni frá 21. ágúst 2024.

Eins og staðan er hjá skólanum í dag, þá hefur Kvikmyndaskóli Íslands enga viðurkenningu, námslánahæfi nemenda er fallið niður vegna starfsemi kvikmyndadeildar Listaháskóla Íslands og skólinn hefur ekki framlengdan þjónustusamning.

Nýtt stjórnarráð verður að strax að ganga í að leysa þessi verkefni svo ekki komi frekari hnökra á starfsemi þessarar mikilvægu stofnunar fyrir íslenskan kvikmyndaiðnað. Það verður að tryggja að nemendur fái nám sitt metið á réttu skólastigi.

Fyrir þá sem vilja kynna sér háskóla umsókn Kvikmyndaskóla Íslands nánar, bendum við á eftirfarandi hlekk :

https://onedrive.live.com/?authkey=%21ADF6Es8i18AVB%5Fs&id=D8342A2433BD4B5F%215213&cid=D8342A2433BD4B5F

Meðfylgjandi eru einnig framlagðar áætlanir um útskriftir skólans fyrir tímabilið 2025 - 2029.

Böðvar Bjarki Pétursson

Formaður stjórnar Kvikmyndaskóla Íslands.