Námið

Kvikmyndanám er bæði bóklegt og verklegt þar sem nemendur, skrifa, framleiða, leika, klippa, vinna og leikstýra sínum eigin myndum undir handleiðslu kennara skólans. Nemendur öðlast færni í fjórum grunnstoðum kvikmyndagerðar: kvikmyndatöku, klippingu, hljóðvinnslu og myndbreytingu (visual effects) en sérhæfa sig í kvikmyndagerð, kvikmyndatækni eða kvikmyndaleik. Nemendur læra að starfa á faglegan hátt í fjölbreyttum hópum þar sem virðing og verkstjórn eru í fyrirrúmi. Áhersla er lögð á hagnýtt nám sem nemendur geta annað hvort nýtt við atvinnu hjá fyrirtækjum í framleiðslu kvikmynda og sjónvarpsefnis, við sjálfstæðan rekstur eða til að byggja ofan á með háskólanámi á Íslandi eða erlendis.

Inntökuskilyrði

Inntökuskilyrði á brautina er stúdentspróf eða sambærileg menntun. Við mat á umsækjendum er tekið tillit til þekkingar og reynslu sem nýtist við námið. Um inntökuskilyrði og verklag við val á nemendum s.s. inntökuviðtöl og inntökupróf er fjallað um í skólanámskrá en ætlast er til að umsækjendur sendi, með umsókn, efni sem þeir hafa búið til eða tekið þátt í.

Skipulag

Kvikmyndanám er bæði bóklegt og verklegt nám í skóla. Áhersla er lögð á verklega færni og er námið skipulagt sem fjögurra anna nám, alls 120 einingar. Fyrsta önnin er sameiginleg en síðan velja nemendur sér eitt af eftirfarandi kjörsviðum: kvikmyndagerð, kvikmyndatækni eða kvikmyndaleik. Til að ljúka námi þarf að ljúka öllum hlutum námsins.

Námsmat

Lögð er áhersla á fjölbreyttar aðferðir við námsmat. Það byggir á mætingu, virkni í tímum og mati á útfærslu og frágangi verkefna. Ferilmappa er oft á tíðum hluti af lokaeinkunn áfanga. Nemendur vinna öll verkefni og próf sem lögð eru fyrir og þurfa að ná ásættanlegum árangri.

Reglur um námsframvindu

Miðað er við að nemandi í fullu námi ljúki 30 framhaldsskólaeiningum á önn í skóla. Lokavitnisburður er í heilum tölum á bilinu 1-10 og lágmarkseinkunn til að standast áfanga er 5. Nánari reglur um námsframvindu, frávik frá henni og skólasókn má finna í skólanámskrá skólans.

Grunnþættir og lykilhæfni

  1. Mikið reynir á alla þessa þætti í áföngum brautarinnar. Bæði er unnið með tölur og miðlun upplýsinga við kvikmyndagerð, kvikmyndatöku, hljóðtækni og eftirvinnslu útreikninga.

  2. Í öllum áföngum er unnið að því að efla sjálfstæði nemenda í námi og vinnubrögðum. Þeir eru þjálfaðir í að setja sér raunhæf markmið í námi og vinna að þeim. Kennsluaðferðir eru margvíslegar og fjölbreyttar og reyna á þekkingu, leikni og hæfni. Það sama má segja um námsmat. Þá eru nemendur hvattir til að nýta styrkleika sína í námi. Í vinnustofum, námsveri og með jafningjakennslu er leitast við að koma til móts við þá nemendur sem þurfa á sérstökum stuðningi að halda í námi.

  3. Mikill hluti námsins felur í sér skapandi starf. Áhersla er lögð á skapandi útfærslu við úrlausn verkefna sem tengjast fjórum grunnstoðum kvikmyndagerðar: kvikmyndatöku, klippingu, hljóðvinnslu og myndbreytingu (visual effects). Við námsmat er horft til skapandi hugsun og hagnýtin þekkingar.

  4. Í kvikmyndanáminu er lögð áhersla á jafnan rétt og tækifæri allra að námi óháð búsetu, trúarbrögðum, þjóðerni, kynþætti, kynhneigð, aldri, litarhætti eða tungumáli. Það endurspeglast í allri vinnu innan skólans. Jafnframt er í skólanum jafningjakennsla og námsver, öllum opið, ætlað til að jafna aðstöðumun nemenda við heimanám og nám almennt.

  5. Í kvikmyndanáminu er lögð áhersla á sjálfbærni. Unnið er að því að nemendur verði virkir og ábyrgir borgarar bæði gagnvart samfélaginu og umhverfi sínu. Ætlast er til að nemendur gangi af virðingu, öryggi og ábyrgð um vinnuumhverfi sitt til þess að koma í veg fyrir sjúkdóma og slys. Auk þess læra nemendur um förgun úrgangs á umhverfisvænan og öruggan hátt.

  6. Skólinn leggur mikla áherslu á að nemendur geti útskýrt og tjáð sig um verklag og vinnuferli á ensku. Það er annars vegar gert á þann hátt að sumt námsefni er kennt á ensku og hinsvegar með því að þjálfa nemendur í að miðla upplýsingum og leiðbeiningum um framvindu verkefna á ensku.

  7. Í skólastarfinu er lögð áhersla á að gera nemendur meðvitaða um ábyrgð á eigin heilsu, mikilvægi réttrar líkamsstöðu og líkamsbeitingar við vinnu. Áhersla er lögð á öryggi á vinnustað og nemendur þjálfaðir í að vera meðvitaðir um tæknilegt öryggi við meðferð búnaðar. Nemendur eru hvattir til þess að temja sér heilbrigðan lífsstíl og það viðhorf almennt lagt til grundvallar að nemendur beri ábyrgð á sjálfum sér og eigin gjörðum.

  8. Skólinn leggur mikla áherslu á að nemendur geti útskýrt og tjáð sig um verklag og vinnuferli á íslensku. Það er gert með því að þjálfa nemendur í að miðla upplýsingum og leiðbeiningum um framvindu verkefna á íslensku. Í verkefnavinnu þurfa nemendur að tjá sig munnlega og skriflega til að koma upplýsingum á framfæri.

  9. Nemendur læra að starfa á faglegan hátt í fjölbreyttum hópum þar sem virðing og verkstjórn eru í fyrirrúmi. Þeir læra þannig að sýna eigin störfum og annarra virðingu. Mikið reynir á samvinnu við lausn margvíslegra verkefna á námsbrautinni. Nemendur læra að bera virðingu fyrir mismunandi skoðunum, taka tillit til samnemenda, samstarfsfólks og mæta hverjum öðrum á uppbyggilegan og jákvæðan hátt. Stuðlað er að því að gera nemendur að virkum og ábyrgum þátttakendum í lýðræðissamfélagi með því að leita eftir viðhorfum þeirra til ákveðinna þátta í þeim tilgangi að bæta skólastarfið s.s. með kennslukönnunum þar sem nemendur láta í ljós álit sitt á skipulagi og innihaldi áfanga, námsefni og kennsluháttum. Nemendur eiga fulltrúa bæði í skólaráði og skólanefnd og leggja þannig sitt af mörkum við stjórnun skólans.