Listaháskólinn Juilliard í New York og Kvikmyndaskóli Íslands í eina sæng

Listaháskólinn Juilliard í New York hefur beðið um áframhaldandi samstarf við Kvikmyndaskóla Íslands fyrir nemendur beggja stofnana. Fulltrúar þessa fræga bandaríska háskóla eru mjög ánægðir með samstarfið

Í febrúar síðastliðinn hóf Kvikmyndaskóli Íslands samstarf við hinn virta bandaríska listaháskóla Juilliard í New York. Skólinn er almennt talinn einn sá besti í heimi á sviði leiklistar- og tónlistarkennslu en úr skólanum hafa útskrifast leikarar eins og Robin Williams, Jessica Chastain, Adam Driver, Laura Linney og goðsagnir í tónlistinni eins og Miles Davis, Nina Simone, Chick Corea og fleiri. Á þeim tæplega 120 árum sem skólinn hefur starfað hefur hann fest sig í sessi sem einn sá mikilvægasti í bandarískum kvikmynda- leikhús- og tónlistarheimi. 

Samstarfið fer þannig fram að Kvikmyndaskóli Íslands býður útskriftarnemum sínum að senda myndir til tónskáldadeildar Juilliard sem tengir sína nemendur við leikstjóra frá Kvikmyndaskólanum. Fulltrúar útskrifaðra nemenda úr Kvikmyndaskólanum í ár hafa verið Ýr Þrastardóttir og Stefán Arnar Alexandersson sem útskrifuðust frá Skapandi tækni, og Kolka Heimisdóttir sem útskrifaðist frá Leiklist. 

Á næstu árum munu útskriftarnemar Kvikmyndaskóla Íslands vera í samstarfi við efnilegustu tónskáld Juilliard skólans í New York. 

Börkur Gunnarsson rektor Kvikmyndaskóla Íslands segir það einstaklega ánægjulegt að virtur listaháskóli eins og Juilliard hafi haft samband við Kvikmyndaskólann að fyrra bragði í byrjun árs og að þeir vilji nú halda áfram samstarfinu; sé það staðfesting á gæðum námsins í skólanum og hlakkar hann mikið til áframhaldandi samstarfs.   

Kvikmyndaskóli Íslands fagnar 30 ára afmæli sínu í ár, þann 18. nóvember næstkomandi. Við skólann hafa ýmist kennt eða numið flestir þekktustu kvikmyndagerðarmenn landsins. Árið 2012 var skólinn tekinn inn í Cilect sem eru alþjóðasamtök kvikmyndaskóla.