Háskólaviðurkenning Kvikmyndaskólans á lokametrunum

BA námsbraut í augsýn í haust

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir háskólaráðherra hefur lagt áherslu á að flýta úttektarferli Kvikmyndaskólans. Hún hefur skipað þrjá sérfræðinga til að veita umsögn um skólann. Þeir munu hefja störf nú í júlímánuði og væntingar skólans eru að þeir hafi lokið störfum 1. september næstkomandi.

Kvikmyndaskólinn nýtur stuðnings Mennta- og barnamálaráðuneytisins, en skólinn hefur starfað undir framhaldsskólaskrifstofu þess ráðuneytis frá árinu 2003. Þar er lögð áhersla á að yfirfærslan verði sem farsælust fyrir skólann og nemendur hans.

Fyrir liggur staðfestur áhugi Háskóla Íslands á samstarfi við Kvikmyndskólann og Kvikmyndafræðin innan Hugvísindasviðs eru tilbúin með 60 eininga aukagrein til að bæta við 120 eininga diplómur Kvikmyndaskólans, til BA gráðu með kvikmyndagerð sem aðalgrein.

 

Háskólayfirfærslunefnd KVÍ/IFS