Engin lognmolla hjá okkur

Nemendur á fyrstu önn Kvikmyndaskóla Íslands héldu áfram í sínu fyrsta námskeiði, TÆK 107, þar sem allar deildir skólans læra undirstöðu kvikmyndagerðar og hófu tökur á sinni fyrstu mynd í skólanum sem þau frumsýna von bráðar.

Nemendur á 2.önn Leikstjórnar og Framleiðslu voru í áfanga í dagskrárgerð fyrir sjónvarp með 3.önn Leiklistar undir leiðsögn Baldvins Albertssonar, ásamt því að fara í listasögu með Lee Lorenzo Lynch. Einnig sátu þau námskeið í Leikstjórn undir leiðsögn Börks Gunnarssonar (Þetta Reddast) með nemendum Handrita og Leikstjórnar.  Nemendur á 4.önn voru á námskeiði í heimildarmyndargerð með Helgu Rakel Rafnsdóttur (Keep Frozen, Salome) og handrita námskeiði undir leiðsögn Huldars Breiðfjörðs (Pabbahelgar, Undir Trénu) ásamt 4.önn Handrita og Leikstjórnar þar sem þau vinna að handriti að útskriftarverkefni sínu.

Nemendur á 2.önn Skapandi Tækni sátu námskeið í kvikmyndatöku undir leiðsögn Björns Ófeigssonar (Gnarr, Latibær), fóru á sett á nýrri íslenskri kvikmynd og aðstoðuðu ásamt kennara sínum, ásamt því að hefja tökur á sinni eigin stutmynd án orða. Nemendur 3.annar hófu námskeið í hljóð eftirvinnslu með Kjartani Kjartassyni (101 Reykjavík, Svartur á Leik) og luku námskeiði í myndbreytingu með fagstjóra myndbreytinga Sigurgeiri Arinbjörnssyni (Stella Blomkvist, Star Trek: Discovery). Nemendur 4.annar fóru á framleiðslu námskeið með 4.önn Handrita og Leikstjórnar undir leiðsögn Arnars Benjamíns (A Reykjavik Porno, Þorsti) og undirbjuggu lokaverkefni sitt með leiðbeinanda sínum Ólafi De Fleur (Borgríki, Malevolent). Ásamt því sat 4.önn námskeið í stofnun framleiðslu fyrirtækja og umsókna, og samtíma kvikmyndasögu. 

Nemendur á 2.önn Handrita og Leikstjórnar sátu námskeið í handritsskrifum fyrir sjónvarpsþætti, þar sem þau munu skrifa “pilot” að sínum eigin þætti undir leiðsögn Daggar Mósesdóttur (Höfundur Óþekktur, Me & Bobby Fischer), listasögu með Lee Lorenzo Lynch og sátu námskeið í Leikstjórn undir leiðsögn Börks Gunnarssonar (Þetta Reddast) ásamt nemendum Leikstjórnar og Framleiðslu. Nemendur á 4.önn sátu námskeið í framleiðslu undir leiðsögn Arnars Benjamíns (A Reykjavik Porno, Þorsti) og námskeið í endurskrifum á handriti í fullri lengd með Hrafnkeli Stefánssyni (Kurteist Fólk, Borgríki). Ásamt því sat 4.önn námskeið í stofnun framleiðslu fyrirtækja og umsókna, og samtíma kvikmyndasögu. 

Nemendur á 2.önn Leiklistar sátu námskeið í leiktækni með Rúnari Guðbrandssyni (Svartur á Leik) og luku námskeiði í sviðsbardagatækni með 3.önn Leiklistar undir leiðsögn Örnu Magneu Danks (Ófærð, Stella Blomkvist), með einkar glæsilegri kynningu. Nemendur á 3.önn fóru ásamt því á námskeið í dagskrárgerð fyrir sjónvarp með nemendum 2.annar í Leikstjórn og Framleiðslu undir leiðsögn Baldvins Albertssonar. Nemendur 4.annar sátu námskeið í handritsgerð með Kolbrún Önnu Björnsdóttur (Svartir Englar) , upprifjunar námskeið í raddvinnu með Þóreyju Sigþórsdóttur (Agnes, Kaldaljós) og svo námskeið í gerð dansmyndbands undir leiðsögn Kolbrúnar Önnu Björnsdóttur (Svartir Englar) og Rut Hermannsdóttur. Einnig fóru þau á námskeið í gerð “showreel” og æfingar fyrir áheyrnarprufur. Ásamt því sat 4.önn námskeið í stofnun framleiðslu fyrirtækja og umsókna, og samtíma kvikmyndasögu.