Kvikmyndaskóli Íslands

Lífið í skólanum

// Lífið í skólanum

 

Innan veggja Kvikmyndaskóla Íslands má finna skapandi einstaklinga sem eru jafnmismunandi og þeir eru margir. Umhverfið er ævintýralegt og spennandi. Sem nemandi kynnist þú fólki úr öllum deildum og myndar sambönd sem þú býrð að alla þína ævi.

Nemendur og starfsfólk setja sterkan svip á skólalífið með ýmsum uppákomum - það er ekki til neitt sem heitir dauð stund í Kvikmyndaskóla Íslands. Kennarar eru ávallt til taks og tilbúnir til þess að hjálpa þér. Hið sama gildir um yfirmenn skólans en þeir eru sýnilegir og sækja eins margar sýningar og viðburði og mögulegt er.