Kvikmyndaskóli Íslands

Nemendafélag

// Nemendafélag

Kínema er nemendafélag Kvikmyndaskóla Íslands og var stofnað af nemendum haustið 2009. Félagið hefur haldið fjöldann allan af viðburðum og má þar nefna bjórkvöld sem nýtast vel fyrir nemendum úr ólíkum deildum til að kynnast enn frekar. Árshátíð Kínema er haldin einu sinni á ári með pompi og prakt og er þar gert upp árið í Kvikmyndaskólanum. Verðlaun eru veitt í anda kvikmyndahátíða og meðal annars mynd ársins valin. Þetta er þó allt til gamans gert, en líka til að auka metnað við gerð myndanna.  

Lífið í skólanum er fjölbreytt og skemmtilegt. Hér er samankominn ólíkur hópur fólks á öllum aldri sem á það sameiginlegt að hafa brennandi áhuga á kvikmyndagerð en þó oft á ólíkan hátt. Í skólanum er mikið samstarf milli deilda sem er bæði gott og nærandi. Það gefur okkur tækifæri til að kynnast enn betur öðrum nemendum og öðlast þekkingu á ólíkum sviðum kvikmyndagerðar. Samstarf nemenda og kennara er alveg frábært. Hér líta nemendur á kennara sem lærimeistara og kennararnir eru sömuleiðis mjög fúsir og viljugir til að hjálpa og miðla þekkingu sinni. Kennslan í skólanum er góð, hnitmiðuð og krefjandi. Hver dagur er mjög fljótur að líða og stundum má sjá fólk vinna langt fram eftir nóttu, enda er aðgangur að skólanum ótakmarkaður.

Í Kvikmyndaskóla Íslands er mikill vinskapur meðal fólks og samvinna og hjálpsemi einkennisorð nemenda, hvort sem það er innan skólans eða út í hinum harða heimi kvikmyndagerðar.