Kvikmyndaskóli Íslands

TÆKNIDEILD

// Skapandi tæknivinna

Í tæknideild færð þú að kynnast öllum helstu tæknigreinum innan kvikmyndagerðarinnar. Kvikmyndataka, klipping og hljóðupptaka/vinnsla eru þungamiðja námsins. Þú kynnist einnig leikmyndahönnun og eftirvinnslu, svo sem litaleiðréttingu og tæknibrellum. Nemendur fá einnig frábært tækifæri til þess að koma sér snemma inn í iðnaðinn þegar þeir sækja starfsþjálfun í boði starfandi kvikmyndafyrirtækja á Íslandi. 

Nemendur eru teknir inn í deildina á hverju misseri og valdir með sérstökum inntökuviðtölum. Leitað er að skapandi fólki sem er ófeimið við tæki, hefur góða tölvukunnáttu og vinnur vel með öðrum. Sem útskrifaður nemandi af brautinni hlýtur þú titilinn kvikmyndagerðarmaður með tæknivinnslu sem sérsvið. Atvinnutækifæri eru fjölbreytt að loknu námi, svo sem hjá kvikmyndafyrirtækjum, sjónvarpsstöðvum, net- og tölvuleikjafyrirtækjum o.s.frv.
image description

Meðal námskeiða sem boðið er upp á í tæknideild eru; myndheimur / tölvuvinnsla, listasaga, klipping / myndvinnsla ofl..

image description

Við deildina starfar fjöldinn allur af leiðbeinendum og kennurum sem hafa það markmið að miðla af þekkingu sinni og reynslu..

image description

Hér er hægt að sjá þá nemendur sem stunda nám við deildina..