// Tæknibúnaður
Allar deildir hafa aðgang að tækjaleigu Kvikmyndaskóla Íslands. Þar er að finna víðtækt úrval af ljósum, kortavélum (Sony PMW-EX1) sem og HDV vélum fyrir smærri framleiðslur (Sony HVR-V1), upptökutæki (sound devices), sennheiser og RØDE hljóðbúnaður, Linsu adapter + linsukitt, monitora, dolly o.s.frv. Þá er skólinn einnig í samstarfi við tækjaleigurnar KUKL og Luxor og leigir gjarnan tæki þaðan.Skólinn er útbúinn með hljóðupptökuveri, mix herbergi, tölvuverum og öllum þeim helsta hugbúnaði sem nemendur þurfa að nota. Einnig hafa nemendur aðgang að stúdíói með tilheyrandi tækjum og búnaði.
















