// Handrit / leikstjórn
Í deildinni er boðið upp á margþætt og skapandi nám í handritagerð og leikstjórn.Innan sviðsins eru kenndar aðferðir við að þróa hugmyndir og skrifa handrit fyrir kvikmyndir, sjónvarpsefni og aðra myndmiðla. Nemendur hljóta einnig markvissa þjálfun í að leikstýra handritum eftir sig og aðra. Þá er þeim veitt öll sú grunnþekking sem höfundur á sviði kvikmynda þarf að búa yfir. Próf af sérsviðinu veitir titilinn kvikmyndagerðarmaður með sérhæfingu í handritagerð og leikstjórn. Störf fyrir fólk með slíka þekkingu eru hjá kvikmyndafyrirtækjum, sjónvarpsstöðvum, auglýsingastofum, útgáfufyrirtækjum og víðar.
Leitað er að mjög hugmyndaríkum nemendum með hæfileika og brennandi áhuga á að segja sögur á myndrænan hátt.
Markmið námskeiða í deildinni er að nemendur nái góðum tökum á hlutverki leikstjórans og öðlist reynslu af skrifum. Meðal námskeiða sem boðið er upp á eru; hugmyndir, leikstjórn, myndræn frásögn ofl...
Kennarar og leiðbeinendur deildarinnar eru meðal annars rithöfundar, leikstjórar, framleiðendur ofl...




















