// Leikstjórn / framleiðsla
Í leikstjórnar- og framleiðsludeild er boðið upp á fjölbreytt og krefjandi nám í leikstjórn og framleiðslu fyrir kvikmyndir, sjónvarp og aðra myndmiðla. Þú vinnur náið með atvinnuleikurum og færð þjálfun í leikaraleikstjórn. Þá er einnig þjálfun í aðstoðarleikstjórn, framleiðslu, handritsgerð og myndrænni frásögn, sem og grunnþekkingu á tækni sem notuð er við nútíma kvikmyndagerð. Markmiðið er að við útskrift sért þú tilbúin(n) til þess að búa til framúrskarandi kvikmyndaverk og hafir góðan skilning á grundvallarlögmálum kvikmyndagerðar. Það er mikilvægt að nemendur kunni að vinna hver með öðrum en séu einnig sjálfstæðir og vandvirkir. Atvinnutækifæri eru fjölbreytt að loknu námi, svo sem hjá kvikmyndafyrirtækjum, sjónvarpsstöðvum, net- og tölvuleikjafyrirtækjum o.s.frv.Námið er fyrst og fremst verklegt og þú vinnur fjöldann allan af kvikmynda- og sjónvarpsverkefnum. Má þar meðal annars nefna stuttmyndir, auglýsingar, tónlistarmyndbönd, heimildarmyndir, leikna sjónvarpsþætti og skemmtiþætti af ýmsum toga. Nemendur eru teknir inn í deildina á hverju misseri og valdir með sérstökum inntökuviðtölum. Leitað er eftir leiðtogum með skipulagshæfileika og listræna taug - þeim sem hugsa stórt og mikið.
Í deildinni er lögð áhersla á að þjálfa sterka og skapandi leikstjóra og framleiðendur. Meðal námskeiða sem boðið er upp á eru; myndræn frásögn, tónlistarmyndbönd, starfsþjálfun o.fl.
Einvala lið leiðbeinenda og kennara með ríka reynslu úr kvikmyndaheiminum miðla af þekkingu sinni til nemenda.




















