//
Kjarni
Kjarni er samheiti á þeim
námskeiðum sem nemendur af öllum deildum sækja sameiginlega. Þar
lærir þú undirstöðuatriðin í kvikmyndagerð og lestri
kvikmynda. Sömuleiðis er áhersla lögð á að kenna þér grunnatriði
í meðhöndlun og notkun tækja- og tæknibúnaðar. Þá eru lykilkvikmyndir
skoðaðar og greindar ítarlega. Í kjarnanum öðlastu grundvallarþekkingu
á verkferlum skólans og vinnur með fólki úr öllum deildum. Kjarninn
er gott veganesti sem undirbýr þig undir þátttöku á vinnumarkaði
og færir þér víðari sýn og aukinn skilning á kvikmyndagerð.