Kvikmyndaskóli Íslands

LEIKLISTARDEILD

// Leiklist

Í Leiklistardeild Kvikmyndaskóla Íslands lærir þú grunntækni í þjálfun og
listsköpun leikarans fyrir kvikmyndir og leiksvið. Ítarlega
er farið í leiktækni, líkamlega tjáningu og raddbeitingu. Þú færð þjálfun
í Complete Vocal söngtækninni. Söngkennararnir eru með kennaramenntun frá Complete Vocal Institute skólanum. Mikil áhersla er lögð á líkamsbeitingu, tjáningu og líkamsmeðvitund til að finna styrkleika hvers og eins.

Áhersla er lögð á leik í kvikmyndum og er það sérstaða þessarar
leiklistardeildar. Þú færð einnig kennslu í grunnvinnu við kvikmyndir;
skrifar þitt eigið handrit, framleiðir, leikstýrir og leikur í eigin myndum. Mikið er lagt upp úr samstarfi nemenda á milli deilda og aðstoða þeir hver annan við gerð myndanna.
Með sérstöku samvinnukerfi skólans hefur þú næg tækifæri til að leika
í myndum annara nemenda þar sem skólinn framleiðir hátt í 90 myndir á hverri
önn.

Tekið er inn í deildina tvisvar á ári eru nemendur valdir með inntökuprófum og
viðtölum. Þú útskrifast sem kvikmyndagerðamaður með leiklist sem sérsvið
og átt að námi loknu að hafa kunnáttu, sjálfstraust og sjálfstæði til að bjóða
fram starfskrafta þína á sviði leiklistar og kvikmyndagerðar, við talsetningar og
hvaða starf sem er í skemmtanaiðnaðinum. Námið er einnig góður grunnur fyrir
framhaldsnám í leiklist og kvikmyndagerð.


image description

Krefjandi list- og fagnám þar sem boðið er upp á kennslu í meðal annars; leiksköpun, leiklistarsögu, leikur og rödd, leikur og hreyfing ofl..

image description

Kennarar deildarinnar koma úr öllum áttum með ólíkan leiklistarbakgrunn og fjölbreytta reynslu..

image description

Ólíkt fólk á ólíkum aldri, með brennandi leiklistaráhuga..