// Nám í boði
Hægt er að velja um nám við fjórar deildir við skólann. Mikilvægt er að umsækjendur kynni sér vel allar deildirnar og taki yfirvegaða ákvörðun um hvaða námsleið er valin. Ekki er hægt að skipta um deild eftir að nám er hafið.
Deild 1: Leikstjórn og framleiðsla
Hér eru menntaðir kvikmyndaleikstjórar og framleiðendur til starfa á fjölbreyttu sviði kvikmyndagerðar. Nemendur eru þjálfaðir til starfa við auglýsingar, tónlistarmyndbandagerð, heimildarmyndir, sjónvarpsþáttagerð, fréttavinnslu. Mest áhersla er þó lögð á leikið efni og nemendur framleiða og leikstýra að lágmarki 3 leiknum stuttmyndum í náminu auk þess að vinna að fjölda einstaklings og hópverkefna.
Deildin hentar vel kraftmiklum einstaklingum sem vilja öðlast breiðan grunn á ýmsum sviðum kvikmyndagerðar og sjónvarpsvinnslu samhliða því að sérhæfa sig í leikstjórn og framleiðslu.

Deild 2: Skapandi tæknivinna
Í þessari deild eru menntaðir kvikmyndatökumenn, klipparar, hljóðhönnuðir og leikmyndahönnuðir. Kvikmyndataka, klipping og hljóðhönnun hafa jafnt vægi út námið, en nemendur geta stýrt frekari sérhæfingu með þátttöku sinni í ýmsum kvikmyndaverkefnum. Námið er samspil fræðilegrar umfjöllunar og verklegra æfinga af ýmsu tagi. Nemendur í tæknideild þurfa einnig að skila af sér 2 stuttmyndum sem eru þeirra höfundarverk.
Deildin hentar skapandi og listrænum einstaklingum sem elska að nota tækni og tæknibúnað til að vinna á skapandi hátt.

Deild 3: Handrit og leikstjórn
Deildin er fyrir þá sem vilja skrifa sín handrit sjálfir og leikstýra þeim. Þetta er mjög krefjandi deild þar sem nemendur þurfa að vinna að mörgum handritum samhliða, auk þess sem þeir leikstýra lokaverkefni á hverri önn. Áhersla er lögð á að kenna handritsgerð fyrir margvíslegar tegundir kvikmynda, allt frá einföldum iðnaðarmyndum til bíómynda í fullri lengd.
Deildin er fyrir mjög hugmyndaríka einstaklinga með góða ritfærni og getu til að miðla hugmyndum sínum.

Deild 4: Leiklistarsvið
Deildin er fyrir þá sem vilja verða leikarar í kvikmyndum. Jafnframt eru nemendur þjálfaðir í grunnatriðum kvikmyndagerðar. Námið er hefðbundið leiklistarnám þar sem lögð er áhersla á líkama, rödd, stíl, túlkun, dans og söng. Nemendur leika í fjölda verkefna og þurfa auk þess að stjórna gerð tveggja stuttmynda þar sem þeir eru í aðalhlutverki.
Deildin er fyrir þá sem hafa ótvíræða leiklistarhæfileika sem þeir geta sýnt fram á í inntökuprófum.




