Kvikmyndaskóli Íslands

Fréttir

// Nýbakað kvikmyndagerðarfólk

01.07.12

útskrift vorið 2012
Þann 30. júní síðastliðinn útskrifaði Kvikmyndaskóli Íslands glæsilegan hóp nemenda af 4 deildum: leikstjórn/framleiðslu, skapandi tækni, handrit/leikstjórn og leiklist. Útskriftarverkefnin voru af öllum stærðum og gerðum, allt frá þrívíðum teiknimyndum upp í leikið drama.
  • Verðlaun fyrir bestu mynd á leikstjórn/framleiðslu hlaut Emil Morávek.
  • Verðlaun fyrir bestu mynd á skapandi tækni hlaut Björgvin Sigurðarson
  • Verðlaun fyrir bestu mynd á handrit/leikstjórn hlaut Guðni Líndal Benediktsson
  • Verðlaun fyrir bestu mynd á leiklist hlaut Auður B. Snorradóttir
  • Verðlaun fyrir bestu mynd árgangsins hlaut Óli Jón Gunnarsson
Þá voru veitt sérstök verðlaun fyrir framúrskarandi námsárangur:
  • leikstjórn/framleiðsla - Emil Morávek
  • skapandi tækni - Viggó Hansson
  • handrit/leikstjórn - Guðni Líndal Benediktsson
  • leiklist - Auður B. Snorradóttir
Við óskum útskriftarnemum innilega til hamingju með árangurinn og hlökkum til að fylgjast með um ókomna tíð. 

til baka