Stilla úr "Blæbrigði"
Stuttmyndakeppnin Ljósvakaljóð var haldin hátíðleg í Bíó Paradís síðastliðinn laugardag en þar voru þau Anni Didriksen Ólafsdóttir og Oddur Elíasson sigursæl. Anni, nemandi á handrita- og leikstjórnardeild var með bestu myndina í eldri flokki keppenda (20-25 ára) og þótti mynd hennar
Blæbrigði frábær í alla staði, enda fékk hún samhljóma lof allrar dómnefndarinnar. Oddur Elíasson sem er útskrifaður af Handrita- og leikstjórnardeild, hlaut verðlaun fyrir besta handritið og bar það nafnið
Kæra dagbók.
Þetta er 2. árið í röð sem nemendur frá Kvikmyndaskólanum sigra ljósvakaljóð en síðast var það Erlendur Sveinsson sem er nú útskrifaður af Leikstjórnar- og framleiðsludeild.
Við óskum sigurvegurum innilega til hamingju!
til baka