Kvikmyndaskóli Íslands

Fréttir

// MBL SJÓNVARP og KVÍ kynna STUTTMYNDAHORNIÐ

12.01.12

Stuttmyndahornið
MBL Sjónvarp og Kvikmyndaskóli Íslands hafa tekið sig saman og kynna nú til leiks nýjan þátt sem verður sýndur vikulega, á hverjum sunnudegi í umsjón Hildar Jakobínu Tryggvadóttur. 

Stuttmyndir frá nemendum Kvikmyndaskóla Íslands, núverandi og útskrifuðum, hafa verið valdar til sýninga. Þær eru eins fjölbreyttar og þær eru margar og ætti því hver að finna mynd við sitt hæfi. Láti enginn kvikmyndaáhugamaður þetta framhjá sér fara því hér er á ferðinni ný kynslóð kvikmyndagerðarmanna.

Fyrsti þáttur verður sýndur næstkomandi sunnudag, 15. janúar. Fylgist með á MBL sjónvarpi!

Hildur Jakobína klæðist fötum frá Maníu, laugavegi 51 (Sjá facebook síðu).
Manía

til baka