Kvikmyndaskóli Íslands

Fréttir

// "Einn" - ný mynd eftir Elvar Gunnarsson

11.01.12

Einn plakat
Einn er ný mynd eftir Elvar Gunnarsson. Myndin fjallar um Helga sem er kvikmyndagerðarmaður en hann hefur ákveðið að gera mynd í fullri lengd. Eins og margir höfundar, byggir hann myndina á eigin lífi. Framleiðendur myndarinnar hafa þó aðrar hugmyndir um hvernig myndin eigi að vera og það leggst ekki sérlega vel í Helga. 

Handritið skrifuðu Elvar Gunnarsson og Guðfinnur Ýmir. Í aðalhlutverkum eru Arnþór Þórsteinsson, Guðfinnur Ýmir, Þorsteinn Gunnar Bjarnason, Darren Foreman, Vivian Didriksen Ólafsdóttir, Guðný Lára Árnadóttir og María Ellingsen. Anni Ólafs, Hilmir Berg Ragnarsson og Dagur De'Medici Ólafsson sáu um kvikmyndatöku. Framleiðendur eru Valur Hermannsson, Guðfinnur Ýmir, Canon, Rósa Ásgeirsdóttir og Elvar Gunnarsson. Flestir upptalinna stunda nám við Kvikmyndaskóla Íslands, eru útskrifaðir þaðan eða kenna þar.

Við óskum Elvari Gunnarssyni til hamingju með sína fyrstu mynd í fullri lengd og öllum þeim sem komu við sögu. 

Við bendum á heimasíðu myndarinnar en hana er að finna HÉR á facebook.

Hægt er að nálgast stiklu úr myndinni HÉR.

til baka