Kvikmyndaskóli Íslands

Fréttir

// Reykjavík Shorts&Docs

11.01.12

shorts and docs

Fréttatilkynning:

Verið velkomin á stutt-og heimildamyndahátíðina Reykjavík Shorts&Docs Festival dagana 6.-9. maí 2012.

Þetta er í 10. sinn sem kvikmyndahátíðin er haldin og að því tilefni verður hátíðin stærri og umfangsmeiri en nokkru sinni fyrr. Fólki af vettvangi sjónvarps og kvikmynda verður boðið á hátíðina erlendis frá. Auk kvikmyndasýning á stutt- og heimildamyndum verða pallborðsumræður, vinnusmiðjur, kvikmyndasamkeppni, ásamt fjölda annarra viðburða.

Hægt er að senda inn kvikmyndir á hátíðina fram til 1. mars 2012. Það kostar 4000 kr. að senda inn hverja kvikmynd.

Reykjavík Shorts&Docs Festival er alþjóðleg kvikmyndahátíð með áherslu á stutt- og heimildamyndir. Hægt er að senda inn stuttmyndir sem eru allt að 30 mínútur að lengd, hvort sem það eru leiknar kvikmyndir, teiknimyndir (e. animation) eða tilraunamyndir (e. experimental). Þá er tekið á móti heimildamyndum í hvaða lengd sem er. Þær kvikmyndir sem veljast á hátíðina verða að hafa verið framleiddar á síðustu tveimur árum (2010-2012).

Allar nánari upplýsingar veita:
Brynja Dögg Friðriksdóttir kynningarfulltrúi s: 845 8994 og Heather Millard stjórnandi Reykjavík Shorts&Docs Festival, s: 693 5698

info@shortsdocsfest.com

http://www.shortsdocsfest.com

til baka