Kvikmyndaskóli Íslands

Fréttir

// Aðstoðardeildarforseti við Kvikmyndaskóla Íslands skrifar mynd ársins

03.01.12

Borgríki
Álitsgjafar Fréttablaðsins hafa valið Borgríki sem bestu innlendu mynd ársins. Hrafnkell Stefánsson, aðstoðardeildarforseti við leikstjórn/framleiðslu og handrit/leikstjórn hins vegar, skrifaði myndina sem naut gríðarlegra vinsælda á árinu sem var að líða. Enn fremur var ákveðið að endurgera myndina fyrir amerískan markað en það er leikstjórinn James Mangold sem ætlar að taka verkefnið að sér. Hann er þekktur fyrir myndir eins og Knight and day, 3:10 to Yuma, Walk the Line, Girl interrupted o.fl.

Við óskum Hrafnkeli Stefánssyni innilega til hamingju með árangurinn sem mynd hans hefur hlotið og fylgjumst spennt með framhaldinu.

til baka