// Skólasetning í Regnboganum
19.08.10
Kvikmyndaskóli Íslands býður nemendum sínum á skólasetningu í Regnboganum, mánudaginn 23. ágúst klukkan 13:00. Þar fá nemendur afhentar stundarskár og farið verður yfir skipulag komandi námsannar. Allir nemendur skólans eru hvattir til að mæta. Kennsla hefst síðan samkvæmt stundarskrá þriðjudaginn 24. ágúst.





