// Nýr rektor
30.07.10
Hilmar Oddsson kvikmyndaleikstjóri hefur verið ráðinn rektor
Kvikmyndaskóla Íslands. Hilmar lauk námi í kvikmyndaleikstjórn frá
kvikmyndaháskólanum í München árið 1986 og hefur síðan þá verið einn
mikilvirkasti kvikmyndagerðarmaður Íslendinga. Hann hefur leikstýrt
fimm bíómyndum í fullri lengd, og fjölda leikinna sjónvarpsmynda,
heimildarmynda, skemmtiþátta og stuttmynda. Hilmar hefur auk þess
áralanga kennslureynslu í kvikmyndagerð og leiklist bæði hjá
Kvikmyndaskólanum, Listaháskólanum og víðar. Hilmar tekur við af
Böðvari Bjarka Péturssyni sem sinnt hefur starfi rektors undanfarin tvö
ár, sem starfandi stjórnarformaður skólans.





