Kvikmyndaskóli Íslands

Skólagjöld

// Skólagjöld

Kvikmyndaskóli Íslands er einkaskóli og standa skólgjöld nemendaundir um 60% af kennslukostnaði. Innifalið í skólagjöldum er leiga á tækjum auk þess sem nemendur fá fjármuni til umráða við framleiðslu á ákveðnum verkefnum.

Skólagjöldin eru þau sömu á öll sérsviðin, krónur 700 þúsund á önn (Tekur gildi með nýnemum sem hefja nám á vorönn 2012).

Lánasjóður íslenskra námsmanna lánar fyrir skólagjöldum að fullu. 


Nemandi skal greiða staðfestingagjald að upphæð krónur 30.000 þegar hann hefur nám á 1. önn. Getið er um greiðsluskilmála staðfestingagjalds í bréfi þegar inntaka nemanda er staðfest.

Þrjár meginreglur gilda um skólagjöld:
1) Nemendur hefja ekki nám á önn, fyrr en gengið hefur verið frá greiðslu skólagjalda.
2) Skólagjöld fást ekki endurgreidd eftir að nám er hafið.
3) Kostnaður við nám breytist ekki á námstíma.

Um ágreining sem upp kann að rísa vegna skólagjalda skal fara með eins og önnur kvartana- og kærumál í skólanum.Tekið skal fram að samningar og viðskipti milli nemanda ogKvikmyndaskólans vegna greiðslu og innheimtu skólagjalda eru ekki á ábyrgð annarra.

Þú getur nálgast umsóknina hér