Kvikmyndaskóli Íslands

Inntökuskilyrði

// Inntökuskilyrði

Við mat á nemendum inn í skólann er skoðaður bakgrunnur nemenda hvað varðar menntun, atvinnureynslu og lífsreynslu almennt. Reynt er að meta hvernig námið í Kvikmyndaskóla Íslands muni henta viðkomandi nemanda og hversu líklegt sé að nemandi geti náð góðum árangri að námi loknu.

Umsækjendur í allar deildir skólans skulu hafa lokið stúdentsprófi eða jafngildu prófi. Skólanum er þó heimilt að veita inngöngu í skólann umsækjendum sem búa yfir þekkingu og reynslu sem telst fullnægjandi undirbúningur fyrir nám við skólann. Rektor ákveður samkvæmt umsögn inntökunefndar hvaða nemendum skal veitt innganga í skólann á þessum forsendum.

Umsækjendur í deildir I til III þurfa að senda inn ítarlega umsókn, einnig eru þeir hvattir til að senda inn efni sem þeir hafa búið til eða tekið þátt í.
Erlendir umsækjendur þurfa jafnframt að senda kynningarmynd um sjálfa sig samkvæmt sérstökum reglum. Telst það vera ígildi inntökuviðtals og eru þeir valdir inn á grunni þess og innsendra gagna. Íslenskir umsækjendur þurfa að mæta í inntökuviðtöl og taka þangað með sér ljósrit eða staðfest afrit af prófskírteinum og öðrum gögnum sem kann að verða óskað eftir. Umsækjendur í deild IV, leiklistardeild þurfa að þreyta verklegt inntökupróf ásamt viðtölum. Á það einnig við um erlenda umsækjendur.

Deildarforsetar ásamt völdum kennurum skipa inntökunefndir við skólann. Tekið er við nýnemum inn í skólann bæði á haust- og vorönn. Auglýst skal eftir umsóknum á haustönn eigi síðar en í apríl og skal inntöku vera lokið í júní. Auglýst skal eftir umsóknum á vorönn eigi síðar en í október og skal inntöku vera lokið í nóvember.

Hámarksfjöldi í hvern bekk eru 12 nemendur. Leitast skal við að hafa jafnræði kynja í bekkjum.

Þú getur nálgast umsóknina hér