// Umsókn
Kæri umsækjandi!Þakka þér fyrir að sækja um skólavist í Kvikmyndaskóla Íslands.
Hér fyrir neðan er umsóknarferlið útskýrt.Og með því að smella hér má skoða inntökuskilyrðin nánar.
Umsóknartímabil í Kvikmyndaskólann eru tvö á ári, fyrir haustönn og vorönn.
Tekið er við umsóknum fyrir vorönn 2011 frá 16. desember til 27. janúar, 2012.
1) Fyrsta skrefið er að fylla út umsóknareyðublað, sem er á heimasíðunni. Þú finnur umsóknina með því að smella hér.
Svara þarf öllum spurningum og merkja við eina deild. Þú hefur möguleika á því að senda okkur hlekki á ítarefni, t.d. myndir, myndbönd, texta, CV eða álíka efni, sem þegar liggur á netinu og styður umsóknina.
Einnig hefur þú möguleika á að kynna þig nánar með því að fylla út þar til gerðan reit.
2) Farið er yfir allar umsóknir af þar til skipuðum nefndum deildanna. Í nefndunum sitja deildarforsetar og utanaðkomandi fagfólk, eftir því sem við á fyrir hverja einstaka deild. Á þessu stigi fer fram fyrsta faglega mat á umsækjendum og þeir valdir út, sem boðaðir eru í viðtal. Öllum umsækjendum eru kynntar niðurstöður.
3) Í febrúar fara fram viðtöl við þá umsækjendur, sem komast í gegnum fyrsta úrtak fyrir vorönn 2012.
Viðtöl fyrir deildir 1, 2 og 3 annast deildarforsetarnir þrír ásamt rektor og utanaðkomandi fagmanni. Viðtöl vegna inntöku í deild 4 - Leiklistardeild - annast deildarforseti og tveir leiktúlkunarkennarar ásamt rektor.
Allir umsækjendur sem fara í viðtal leysa auk þess skemmtilegt myndverkefni.
4) Niðurstöður dómnefnda munu liggja fyrir á tímabilinu í febrúar, 2012.
Ítarefni í pósti má senda á skrifstofu skólans að Víkurhvarfi 1, 203 Kópavogi.




