// Hvers vegna Kvikmyndaskóli Íslands?
Við viljum hjálpa þér að koma hugmyndum í framkvæmd. Sem nemandi í Kvikmyndaskóla Íslands færðu tækifæri til að gera þínar eigin kvikmyndir í skapandi og metnaðarfullu umhverfi. Þér býðst fjölbreytt nám í fjórum deildum og geta þar með allir fundið sitt áhugasvið innan fagsins. En enginn er bundinn við eina grein. Þú getur lært leiklist en endað sem framleiðandi, orðið afbragðs handritshöfundur en ákveðið að leggja fyrir þig kvikmyndatöku.
Kvikmyndaskóli Íslands sameinar þekkingu starfandi kvikmyndagerðarmanna, leikara og skálda, framleiðslufyrirtækja og sjónvarpsstöðva. Þú lærir að framleiða myndefni sem stenst alþjóðlegar gæðakröfur og á hverri önn eru um 90 myndir framleiddar við skólann. Mikið er lagt upp úr því að nemendur kynnist öllum hliðum iðnaðarins. Hér eru framleidd verkefni sem sýnd hafa verið í sjónvarpi, í kvikmyndahúsum og á kvikmyndahátíðum víðsvegar um heim.
Kvikmyndaskóli Íslands starfar með viðurkenningu menntamálaráðuneytisins og samkvæmt lögum og aðalnámskrá framhaldsskóla. Rík áhersla er lögð á gæðamat og sérstök fagráð, skipuð fulltrúum hagsmunaaðila, sjá um eftirlit og úttektir á starfsemi skólans. Eftir hvern áfanga færðu sömuleiðis tækifæri til þess að viðra viðhorf þitt hvað kennsluna varðar og áfangann sjálfan. Skólinn er í stöðugri sjálfsskoðun til þess að tryggja þér fyrsta flokks menntun og vinnuumhverfi.





