Kvikmyndaskóli Íslands

Stefna skólans

// Stefna skólans

Kvikmyndaskóli Íslands eflir íslenskan kvikmynda- og sjónvarpsiðnað. Markmið skólans eru:

  • Að finna hæfileikafólk og veita því trausta, fræðilega og hagnýta menntun sem gerir það eftirsótt á vinnumarkaði strax að loknu námi, jafnframt því að undirbúa nemendur fyrir framhaldsnám í kvikmyndagerð. 
  • Að þjálfa nemendur í beitingu og notkun myndmáls og auka þátt myndmiðla í íslensku samfélagi.
  • Að efla íslenska kvikmyndagerð sem útflutningsvöru og virkja nemendur til þess að sigra heiminn.
  • Að fylgjast með og aðlaga námið að nýjungum í fjölmiðlun og dreifingu svo mennta megi fólk til nýrra starfa sem skapast.
  • Að bjóða fólki, óháð þjóðerni, kynþætti og trú, upp á spennandi valkost í námi hér á Íslandi.