Kvikmyndaskóli Íslands

Frá rektor

// Frá rektor



Kæru vinir og velunnarar Kvikmyndaskóla Íslands. Mig langar sérstaklega til að bjóða þá velkomna sem eru að velta því fyrir sér hvort þeir finni eitthvað við sitt hæfi innan veggja skólans. Það er von okkar að hugsanlegir umsækjendur um skólavist finni hér svör við mörgum þeirra spurninga sem kvikna þegar hugað er að framtíðarnámi. Við erum ákaflega stolt af því starfi sem hér fer fram, starfi sem er í stöðugri endurskoðun og endurnýjun, án þess að vikið sé frá þeim meginatriðum sem við teljum að liggi til grundvallar öllu metnaðarfullu námi í kvikmyndagerð. 

Kvikmyndaskóli Íslands er ekki gamall í samanburði við helstu kvikmyndaskóla Evrópu. En líkt og þeir byggir hann á gamalli og sterkri hefð. Kvikmyndagerð hvílir nefnilega, líkt og flestar aðrar listgreinar, á gömlum grunni. Markmið hennar er enn hið sama og á tímum þöglu myndanna, að fanga athygli áhorfenda og leiða þá um ævintýralega söguheima, þannig að áhorfandinn verði fyrir einstakri reynslu, reynslu sem aðeins kvikmyndin getur veitt. Þetta gerir hún með hjálp og  í félagi við aðrar listgreinar og nýtir sér í því augnamiði tækni sem er í stöðugri framþróun. Og það er sannarlega hægt að læra að ná betra valdi á öllum þessum þáttum. Þar koma  kvikmyndaskólar til sögunnar.

Kvikmyndaskóli Íslands rekur upphaf sitt til ársins 1992, þegar stofnandinn, Böðvar Bjarki Pétursson, safnaði saman nokkrum af helstu kvikmyndagerðarmönnum þjóðarinnar og bauð upp á tveggja mánaða grunnkúrs í kvikmyndagerð. Síðan hefur mikið vatn runnið til sjávar, stutt byrjendanámskeið eða nokkurs konar ,,krasskúrs” er orðið að tveggja ára kröfuhörðu námi. Og það gerðist sannarlega ekki á einni nóttu, og heldur ekki áfallalaust. Það er ekkert launungarmál að það var fyrst og fremst fyrir elju og óbilandi trú Bövars Bjarka að skólinn náði að lifa, dafna og þroskast fram á þennan dag. Böðvar Bjarki hefur allt frá upphafi rekið skólann og veitt honum forstöðu, hann hefur, með hjálp frábærra fagmanna, komið skólanum þangað sem hann er í dag.

Og hvar er skólinn staddur í skólakerfi landsmanna? Kvikmyndaskóli Íslands er á tímamótum, eins konar breytingarskeiði. Hann stefnir á háskólastig, að bjóða auk núverandi náms, sem er tveggja ára diplómanám, upp á þriggja ára BA nám og jafnvel meistaranám er fram líða stundir. Það mun væntanlega gerast  í samvinnu við aðra rótgróna menntastofnun. Þreifingar og viðræður eru þegar hafnar og verður spennandi að sjá hverju þær skila. Skólinn stefnir einnig að opnun alþjóðlegrar deildar, þar sem kennsla færi fram á ensku. Við munum kynna þær áætlanir betur síðar.

Umsækjandi um nám í Kvikmyndaskóla Íslands þarf strax í upphafi að velja á milli fjögurra meginnámsbrauta, sérsviðs 1; leikstjórnar og framleiðslu, sérsviðs 2; tæknivinnslu, sérsviðs 3; handrits og leikstjórnar og sérsviðs 4; leiklistar.  Fyrstu þrjú sérsviðin eru hefbundin svið kvikmyndagerðar, en það er einkum fjórða sérsviðið, leiklist, sem skilur Kvikmyndaskóla Íslands frá öðrum sambærilegum skólum.  Við erum þeirrar skoðunar að starf leikarans sé svo nátengt kvikmyndagerð og í raun órjúfanlegur þáttur af kvikmyndahefðinni, að okkur finnst eðlilegt að tengja það öðru grunnnámi í faginu. Leiklistardeild Kvikmyndaskóla Íslands leggur auðvitað höfuðáherslu á kvikmynda- og sjónvarpsleik og skapar sú áhersla deildinni sérstöðu meðal þeirra sem bjóða upp á leiklistarnám á Íslandi, og jafnvel þótt víðar væri leitað.

Við berum hag íslenskrar kvikmyndagerðar fyrir brjósti og viljum veg hennar sem mestan. Við lítum á okkur sem hluta af stórkostlegu ævintýri og viljum leggja okkar af mörkum svo gæði, metnaður og fagmennska verði það sem helst einkennir íslenskan kvikmyndaiðnað og íslenska kvikmyndalist.

Við framtíðarnemendur vil ég segja þetta: Þið hafið ákveðið að eyða nokkrum af bestu árum ævi ykkar í nám sem krefst mikils af ykkur. Það krefst mikils en er jafnframt mjög gefandi. Þið munuð kynnast ykkar líkum, skapandi einstaklingum, fólki sem þið eigið eftir að bindast tryggðarböndum um aldur og ævi. Því meira sem þið leggið af mörkum, þeim mun líklegri eruð þið til að ná tökum á galdrinum, galdrinum að segja góða sögu og leiða okkur um framandi draumalendur. Já, vel á minnst, var enginn búinn að segja ykkur að þetta er þegar öllu er á botninn hvolft galdraskóli?

Hilmar Oddsson
Rektor Kvikmyndaskóla Íslands