Kvikmyndaskóli Íslands

Sigurður Gylfi Magnússon

// Sigurður Gylfi Magnússon

Meðstjórnandi

Dr. Sigurður Gylfi Magnússon er fæddur í Reykjavík 1957. Hann lauk BA námi frá Háskóla Íslands, í sögu og heimspeki, árið 1980. Hann tók MA hjá Carnegie Mellon University í Bandaríkjunum árið 1988 og lauk einnig Ph.D frá sama skóla í sögu árið 1993.

Dr. Sigurður Gylfi Magnússon er formaður miðstöðvar fyrir Microhistorical rannsóknir í Reykjavíkur Akademíunni (www.microhistory.org) og veitir forstöðu Rannsóknarfélagi dr. Kristjáns Eldjárns á Minjasafni Íslands.

Hann hefur skrifað 16 bækur og birt fjöldan allan af greinum í fræðitímaritum hérlendis sem erlendis. Nýjasta bókin hans er Wasteland with Words. A Social History of Iceland. (London: Reaktion Books, 2010 – sjá: http://www.reaktionbooks.co.uk/book.html?id=412).

Dr. Sigurður Gylfi er stofnandi og einn af þremur ritstjórum bókaraðarinnar ‘ The Anthology of Icelandic Popular Culture’ (Sýnisbók íslenskrar alþýðumenningar) en nú þegar hafa verið gefnar út 14 bækur í bókaröðinni. Flestar fjalla bækurnar um persónulegar frásagnir og lifandi sögu.

Sigurður Gylfi Magnússon

Sigurður Gylfi Magnússon

til baka