Kvikmyndaskóli Íslands

Um okkur

// Um okkur



Kvikmyndaskóli Íslands er alþjóðlegur listaskóli sem býður upp á markvissar námsleiðir fyrir þá sem vilja starfa í kvikmynda- og sjónvarpsiðnaðinum. Æðsta markmið okkar er að útskrifa nemendur sem ná afburðaárangri að námi loknu. Námið við skólann er nær eingöngu verklegt og nemendur öðlast mikla reynslu í kvikmyndagerð í vinnu við fjölbreytt og krefjandi verkefni. Við leggjum okkur fram um að laða fram það besta í hverjum nemanda á sama tíma og við gerum miklar kröfur um ástundun.

Kennarar Kvikmyndaskólans eru um 80 talsins. Stærsti hluti þeirra eru starfandi listamenn á ólíkum sviðum kvikmyndagerðar og leiklistar. Kennarar skólans bera með sér ólíkan menntunarlegan bakgrunn inn í skólann, frá Bandaríkjunum, flestum Evrópulöndum og víðar. Sérstaða Kvikmyndaskóla Íslands er staðsetningin mitt á milli Evrópu og Ameríku og skólinn nýtir sér það besta úr iðnaðinum frá báðum heimsálfum.

Markmið okkar hjá Kvikmyndaskóla Íslands  er að vera í fremstu röð kvikmyndaskóla í heiminum. Til þess að takist þurfa útskrifaðir nemendur okkar að komast í forystusveit kvikmyndagerðarmanna. Við leggjum okkur öll fram á hverju degi svo það megi verða.